Aftur um mikilvægi trausts

Halldór Reynisson skrifar eftirfarandi pistil í Fréttablaðið í dag, sem ég vil vekja athygli á: 

Icesave - verðmiði á trausti

Icesave-samningurinn liggur nú fyrir Alþingi. Áhöld eru um hvort hann verður samþykktur eða ekki. Ég óttast að það verði Íslands óhamingju að vopni felli þingið samninginn. Víst er hann ekki góður. En staða okkar sem þjóðar er bara vond. Icesave er okkar erfðasynd vegna svallveislu síðustu ára. Samningurinn okkar yfirbót í augum umheimsins. Það eru óheilindi sem kenna má við skrum þegar reynt er að gera Icesave að flokkspólitískri deilu. Málið er lagatæknilegt, fjárhags legt, það snýst um grunntraust á fjármálastarfsemi heillar álfu; að fólk geti lagt sitt sparifé inn í banka við lágmarksáhættu án þess að eiga það á hættu að spariféð gufi upp. Í húfi er traust þess samfélags þjóðanna sem við teljum okkur tilheyra, norræna samfélagsins, evrópska samfélagsins. Þegar slíkt traust er annars vegar er enginn eyland, ekki einu sinni við Íslendingar. Fyrri ríkisstjórn hefði líka þurft að semja um Icesave. Sennilega hefði útkoman orðið sú sama því málið er eins og áður segir tæknilegt, jafnvel siðferðilegt. Það er því misskilningur, í versta falli yfirdrepskapur þegar reynt er að finna þessum samningi allt til foráttu. Sumir telja sig rata aðra leið. Er það kannski hin leiðin fræga?

Hvað ef samningurinn verður felldur? Stjórnarkreppa? Sundurlyndi? Mánaða eða missera kyrrstaða? Eyðilandið Ísland? Við þurfum að byggja upp traust á okkur. Og traust er bara dýru verði keypt hafi það eitt sinn glatast. Því miður, Icesave er verðmiðinn.

Höfundur er prestur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór Reynisson finnst það nauðsynlegt að drekkja smáþjóð í skuldum.

Við getum staðið við skuldbyndingu okkar og eigum að gera það en einungis upp að því marki að við vegum ekki að grunnstoðum fullveldis okkar.  Samningurinn eins og hann er núna er landráð.

Kalli (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 15:41

2 Smámynd: Ólafur Ingólfsson

Samningurinn er nauðarsamningur til að bjarga okkur frá afleiðingum verka landráðamannanna og einkavinanna. Það má ekki rugla saman orsök og afleiðingu. 

Ólafur Ingólfsson, 30.6.2009 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband