5.11.2009 | 14:35
Hættur á moggablogginu
Eigendur Morgunblaðsins fórnuðu trúverðugleika blaðsins með þeim gjörningi að gera Davíð Oddsson að ritstjóra. Þeir velja að gera blaðið að varnarvettvangi sérhagsmuna í sjávarútvegi og Evrópumálum. Ég hef sagt upp áskrift að blaðinu og mun ekki lesa netútgáfu þess. Því er sjálfhætt að blogga á þessum vettvangi.
5.10.2009 | 22:48
Fara að hætti Bokassa, kanski...?
Hétu öll stuðningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2009 | 16:49
Stjórnin í raun dauð
Stjórnin ekki í hættu vegna Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2009 | 15:20
Hættur að blogga...?
Vinur minn spurði mig hvort ég væri hættur að blogga, það væru svo fáar nýjar færslur á blogginu frá mér. Já, ég er eiginlega hættur að blogga. Það eru margir góðir einstaklingar, menn og konur, sem blogga af alvöru á netinu, reyna að hafa áhrif til hins betra og koma skynsamlegum rökum að í umræðunni. Ég ber mikla virðingu fyrir því fólki. Til að taka þátt í umræðunni verður maður helst að hafa eitthvað uppbyggilegt að leggja til hennar. Ég er því miður á góðri leið með að gefast upp á þessu rugli sem ríkir í stjórnmálum á Íslandi - spillingunni, heimskunni og veruleikabrengluninni - sem endurspeglast best í endurkomu Davíðs Oddssonar inná vettvang stjórnmálanna (já, já, hann er ritstjóri moggans, ekki alþingismaður, en endurkoma hans markar að skrýmsladeild Sjálfstæðisflokksins blæs til sóknar. Nú á að setja spinn á raunveruleikann). Ég nenni ekki að berjast við uppvakninga, og tek mér frí frá blogginu.
21.9.2009 | 13:49
Hinn afstæði sannleikur
Krefur viðskiptaráðherra um svör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.8.2009 | 13:35
Framtíðarhorfur neikvæðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2009 | 14:31
Var Davíð ekki hæfur?
Þetta er stórfrétt. Var Dvíð ekki með yfirburðaþekkingu á efnahagsmálum og hagfræði? Hvers vegna var hann þá skipaður seðlabankastóri?
Það vita allir sem fylgst hafa með stjórnmálum á Íslandi að Seðlabanki Íslands hefur um árabil verið geymsla fyrir uppgjafastjórnmálamenn, sérstaklega úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Birgir Ísleifur (D) hafði metnað til að vinna vel, og bar gæfu til að hlusta á hagfræðinga bankans í störfum sínum. Steingrímur Hermannson (B) spilaði golf og tók því rólega, og var ekki til mikilla vandræða. Davíð Oddsson hélt að hann vissi allt betur en allir aðrir um efnahagsmál, enda maðurinn nýbúinn að handstýra ríkisbönkunum til einkavinanna og gefa þeim ótakmarkað svigrúm að braska með því m.a. að leggja niður Þjóðhagsstofnum. Að skipa lögfræðimenntaðan atvinnupólitíkus sem aðalbankastjóra seðlabankans var álíka gáfulegt og hefði hann verið skipaður yfirskurðlæknir á Landspítalanum. En svona hefur nú Ísland helmingaskiptana verið. Flokksgæðingarnir sitja alls staðar í stjórnsýslunni, hæfileikasnauðir, metnaðarlitlir, vanhæfir.
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 16:21
Goggi galdramaður þyrlar upp moldviðri
Nú heyrir maður af hverjum ruglukollinum á fætur öðrum sem setja fram geðveikislegar tillögur um hvernig stemma megi stigu við hlýnun jarðar. Heyrst hafa hugmyndir um að koma upp risastórum skérmum eða sólhlífum í geimnum eða það nýjasta, að þyrla upp skýjum. Þetta er farið að minna á ruglið á 7. áratugnum, þegar menn voru reyndar hræddir um að það væri að koma ný ísöld. Þá stakk einn galdramaðurinn (bandarískur prófessor, reyndar) upp á því að bræða Grænlandsjökul með því að mála hann svartan. Þá myndi hlýna.
Þekking okkar á veðurfarsþróun er enn sem komið er takmörkuð, og veðurfarskerfin og samspil lofthjúps, vatnhjúps og lífhvols eru gríðarlega flókin. Þetta er ástæða þess að ekki er hægt að spá fyrir um veður með góðri nákvæmni meira en 2-3 daga fram í timann. Öll inngrip í þessi kerfi geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar, og eru út í hött. Danski tölfræðingurinn ætti að halda sig við tölfræðina en láta vera að fara með svona rugl í fjölmiðla.
Tilbúin ský gegn hlýnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.8.2009 | 10:21
Frábært framtak!
Vilja friðlýsa Gjástykki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.8.2009 | 13:36
Marklaus skoðanakönnun
Fleiri andvígir aðild að ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |